Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   mán 02. júní 2025 17:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Áslaug Munda ekki heldur með á morgun
Icelandair
EM KVK 2025
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir verður ekki með á morgun þegar kvennalandsliðið tekur á móti Frakklandi í lokaleik riðlakeppninnar í Þjóðadeildinni.

Áslaug Munda var valinn í hópinn fyrir verkefnið, en var ekki til taks gegn Noregi á föstudag þar sem hún var að útskrifast úr Harvard háskólanum í Bandaríkjunum.

Hún verður ekki heldur með á morgun, en frá þessu sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari landsliðsins, á fréttamannafundi í dag. „Það eru reyndar ekki allar heilar, Áslaug Munda er ekki með okkur, hún er meidd og dró sig út úr hópnum í gær," sagði Steini.

Áslaug Munda varð 24 ára í dag. Hún er vinstri bakvörður sem á að baki tuttugu landsleiki.

Leikurinn á morgun hefst klukkan 18:00 og fer fram á Laugardalsvelli.


Athugasemdir
banner
banner