Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gul viðvörun rétt farin úr gildi þegar vígsluleikurinn hefst
Icelandair
EM KVK 2025
Stelpurnar okkar mæta Frakklandi í kvöld.
Stelpurnar okkar mæta Frakklandi í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld fram vígsluleikurinn á nýja hybrid-grasinu á Laugardalsvelli þegar Ísland mætir Frakklandi í Þjóðadeild kvenna.

Flautað verður til leiks klukkan 18:00 á Laugardalsvlelinum en þetta er mjög svo mikilvægur leikur í Þjóðadeildinni.

Það er ekkert sérstaklega gott veður í kortunum fyrir leik kvöldsins þar sem gular og appelsínur gular viðvaranir eru í gildi um allt land þessa stundina.

Gula viðvörunin er í gildi á höfuðborgarsvæðinu til klukkan 17, klukkutíma áður en leikurinn hefst. „Norðan 13-20 m/s með snörpum vindhviðum. Fólk er hvatt að tryggja lausamuni sem geta fokið," segir í tilkynningu veðurstofunnar um veður á höfuðborgarsvæðinu.

Vindurinn mun aðeins fara niður með kvöldinu en búist er við um 8 metrum á sekúndu og 5 gráðum á meðan leikurinn fer fram.
Athugasemdir
banner