Haítí vann 4-0 sigur á Nýja-Sjálandi í vináttulandsleik sem fram fór í Flórída í nótt. Bæði lið eru að búa sig undir HM.
Ruben Providence skoraði eina mark fyrri hálfleiksins en eftir hlé bættu Lenny Joseph, Frantzdy Pierrot og Markhus Lacroix við mörkum.
Ruben Providence skoraði eina mark fyrri hálfleiksins en eftir hlé bættu Lenny Joseph, Frantzdy Pierrot og Markhus Lacroix við mörkum.
Haítí verður með Brasilíu, Marokkó og Skotlandi í C-riðli á HM. Nýja-Sjáland mun leika í G-riðli með Belgíu, Egyptalandi og Íran.
Heimsmeistaramótið hefst þann 11. júní.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




