„Tímabilið leggst vel í okkur, við erum fullir tilhlökkunar," segja Bjarki Baldvinsson og Elfar Árni Aðalsteinsson sem stýra nú Völsungi til bráðabirgða. Húsvíkingum er spáð neðsta sæti Lengjudeildarinnar af fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar.
„Spáin kemur ekki á óvart, ég held að það sé búið að spá okkur falli síðustu þrjú ár. Við erum vanir þessu og reynum að afsanna þetta."
„Spáin kemur ekki á óvart, ég held að það sé búið að spá okkur falli síðustu þrjú ár. Við erum vanir þessu og reynum að afsanna þetta."
Við náum vonandi að taka það með okkur
Völsungur stóð sig frábærlega á síðasta tímabili og voru í engri fallhættu allt sumarið, komu öllum á óvart og enduðu að lokum í 7. sæti.
„Síðasta tímabilið var í heildina mjög gott, gengið töluvert betra en nákvæmlega allir aðrir voru búnir að spá og mikil gleði á Húsavík. Við náum vonandi að taka það með okkur inn í þetta tímabil," segja þjálfararnir.
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, Alli Jói, hætti sem þjálfari liðsins í vetur en hann var ein stærsta ástæðan fyrir þessum magnaða árangri og festan í liðinu. Húsvíkingar hugsuðu út fyrir boxið í þjálfararáðningu, réðu ævintýramanninn Patrick De Wilde til starfa, en það gekk engan veginn upp og eru þeir í leit að nýjum þjálfara þegar stutt er í mót. Heimamennirnir Elfar Árni og Bjarki stýra liðinu til bráðabirgða en þeir voru báðir hluti af árangrinum góða á síðasta tímabili.
„Eins og flestir vita hefur veturinn kannski ekki gengið nákvæmlega eins og vonast var eftir, en við erum ekkert að velta okkur upp úr því núna. Við nýtum þessa daga fram að móti til að slípa saman hópinn og gefa í. Við erum bara spenntir að taka við á þessum tímapunkti og gerum okkar besta í að gera liðið klárt fyrir átökin," segja þeir.
Verðum klárir í fyrsta leik
Þeir segja að staðan á hópnum fyrir komandi átök sé góð.
„Staðan a hópnum er góð, það er búið að vera töluvert um meiðsli í vetur, eins og gengur og gerist, en við verðum allir klárir í fyrsta leik," segja Elfar og Bjarki en hvernig búast þeir við því að Lengjudeildin spilist?
„Frábær spurning sem erfitt er að svara, mörg frábær lið sem væntanlega ætla sér öll upp um deild. Ætli klassíska svarið tvískipt deild, þéttur pakki upp og niðri eigi ekki ágætlega við?"
„Að lokum, hver eru markmiðin fyrir sumarið?
„Reyna að afsanna þessa spá."


