Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 11. ágúst 2019 10:56
Brynjar Ingi Erluson
Fékk mynd með Salah eftir að hafa hlaupið á ljósastaur
Mohamed Salah og Louis Fowler
Mohamed Salah og Louis Fowler
Mynd: Twitter
Egypski leikmaðurinn Mohamed Salah er afar vinsæll í Liverpool-borg en hann fann afar mikið til með einum stuðningsmanni sem vildi fá mynd með honum.

Salah var að klára æfingu með Liverpool er hann fór í bifreið sína og hélt heim á leið.

Hinn 11 ára gamli Louis Fowler sá bifreiðina hans og byrjaði að hlaupa á eftir bílnum. Hann virtist þó ekki horfa fram fyrir sig og urðu afleiðingarnar þær að hann hljóp á ljósastaur.

Salah sá hvað gerðist og opnaði bílinn til að athuga með hann en allt virtist enda vel og fékk drengurinn mynd með átrúnaðargoðinu.

Mynd fylgir fréttinni en þar er Fowler alblóðugur og berst hreinlega við tárin.


Athugasemdir
banner
banner