Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í írska landsliðinu munu ekki mæta Ísrael á heimavelli í Þjóðadeildinni í haust.
Írska knattspyrnusambandið hefur staðfest að leikurinn, sem átti að fara fram á Aviva leikvanginum í Dublin 4. október, verði þess í stað spilaður á hlutlausum velli erlendis og fyrir luktum dyrum.
Írska knattspyrnusambandið hefur staðfest að leikurinn, sem átti að fara fram á Aviva leikvanginum í Dublin 4. október, verði þess í stað spilaður á hlutlausum velli erlendis og fyrir luktum dyrum.
Sambandið segir ákvörðunina tekna vegna rekstrarlegra og öryggistengdra áskorana við að halda leikinn á heimavelli.
Mikil umræða hefur verið á Írlandi um hvort sniðganga eigi leikina gegn Ísrael vegna ástandsins fyrir botni Miðjarðarhafs.
Heimaleikur Ísraels gegn Írum verður sömuleiðis spilaður á hlutlausum velli en hann fer fram þann 27. september.




