Nuddaði salti í sár Suður-Afríkumanna

Julian Quinones fagnar markinu

Mynd: EPA

Julian Quinones fagnar markinu

Mynd: EPA
Heimsmeistaramótið byrjar ömurlega hjá Suður-Afríkumönnum sem töpuðu opnunarleiknum gegn Mexíkó, 2-0, og misstu tvo leikmenn í bann fyrir næsta leik. Ekki bætti fagn Julian Quinones úr skák.
Quinones skoraði opnunarmark heimsmeistaramótsins þegar hann nýtti sér hræðileg mistök í uppspili Suður-Afríku og skaut föstu skoti á milli fóta Ronwen Williams í markinu.
Hann fagnaði markinu af innlifun og fór síðar til áhorfenda þar sem hann tók eftirminnilegt fagn.
Mexíkóinn tók nákvæmlega sama fagn og Siphiwe Tshabalala gerði þegar hann kom Suður-Afríku yfir gegn Mexíkó í opnunarleik HM 2010.
Quinones, sem er fæddur í Kólumbíu, hóf landsliðsferil sinn með Mexíkó árið 2023. Hann vildi gleðja Mexíkóa og nudda salti í sár Suður-Afríkumanna með fagninu, sem má sjá hér fyrir neðan.

Julian Quiñones doing the same dance that Tshabalala and South Africa did back in 2010. ????????
— All Fútbol MX ???????? (@AllFutbolMX) June 11, 2026
16 years later, Mexico got its revenge. ???????? pic.twitter.com/0bzjVKbx0E