Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 18. febrúar 2019 10:30
Magnús Már Einarsson
Fyrirliði Celtic rekinn út af fyrir fagnaðarlæti
Brown fór upp í stúku til að fagna.
Brown fór upp í stúku til að fagna.
Mynd: Getty Images
Scott Brown, fyrirliði Celtic, skoraði sigurmark liðsins í viðbótartíma gegn Kilmarnock í gær.

Celtic vann leikinn 1-0 og náði um leið átta stiga forskoti á Rangers á toppi deildarinnar.

Brown var í skýjunum með markið og hann hoppaði upp í stúku til að fagna ógurlega með stuðningsmönnum Celtic.

Þegar Brown skilaði sér aftur inn á völlinn fékk hann hins vegar sitt annað gula spjald í leiknum og þar með rautt.

Leikmenn mega ekki fara upp í stúku til að fagna og Brown þarf nú að taka út leikbann í næsta leik fyrir fagnaðarlæti sín.
Athugasemdir
banner
banner
banner