Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. mars 2019 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alaba: Ég var aðdáandi Arsenal sem barn
Mynd: Getty Images
David Alaba hefur verið leikmaður Bayern Munchen síðan árið 2011. Hann er og hefur verið talinn einn af bestu vinstri bakvörðum í heimi.

Alaba var á dögunum í viðtali við þýska blaðið Bild. Þar var hann spurður um veru sína hjá Bayern og hvað framtíðin bæri í skauti hjá sér.

„Ég get ímyndað mér að prófa eitthvað annað en mér líður samt mjög vel hjá Bayern," sagði Alaba.

„Á hverju ári er einhver ný áskorun og ný markmið. Ég er ánægður í Munchen en get samt að sjálfsögðu séð mig fara einhvert annað í framtíðinni"

„Ég sé mig fyrir mér á Spáni eða á Englandi. Real og Barca eru stærst á Spáni en mér líst líka vel á England."

Alaba var svo að lokum spurður út í það hvaða lið hann hafi stutt sem barn.

„Ég var Arsenal stuðningsmaður sem krakki. Þegar þú ert Arsenal stuðningsmaður sem krakki þá verðuru það alltaf á einhvern hátt"

Gæti Alaba verið að impra að því að hann eigi eftir að spila fyrir Arsenal í framtíðinni?
Athugasemdir
banner