Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 10:38
Kári Snorrason
Arsenal í viðræðum um undrabarn Leicester
Mynd: Leicester
Arsenal er í viðræðum um kaup á Jeremy Monga, sextán ára ungstirni Leicester.

Monga er eftirsóttur biti en mörg stórlið eru á höttunum eftir honum. Breski blaðamaðurinn Ben Jacobs greinir frá því að félagið hafi fengið allt að átta formlegar fyrirspurnir um leikmanninn.

Þá segir hann að Monga gæti kostað um tíu milljónir punda.

Monga spilaði 27 leiki með Leicester á nýloknu tímabili en félagið féll niður úr Championship deildinni og mun spila í League 1 á næsta tímabili.


Slapp
banner
banner
banner