Liverpool rennur löngunaraugum til Camavinga - Barca og Juve vilja Bernardo Silva - Juventus vill Ugarte
banner
   mið 08. apríl 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin í dag - Erfitt verkefni bíður Betis
Real Betis heimsækir Braga
Real Betis heimsækir Braga
Mynd: EPA
Braga og Real Betis mætast í fyrsta leiknum í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar klukkan 16:45 í dag.

Það má búast við hörkuleik í Portúgal en Braga hefur haldið hreinu í sjö Evrópudeildarleikjum á tímabilinu.

Þetta er í fjórða sinn sem Braga kemst í 8-liða úrslit keppninnar og hefur liðið unnið níu af síðustu tíu Evrópuleikjum en liðið er að mæta Real Betis á frábærum tímapunkti sem hefur verið að missa dampinn á síðustu vikum.

Sigurvegarinn úr einvíginu mætir annað hvort Celta Vigo eða Freiburg í undanúrslitum.

Leikur dagsins:
16:45 Braga - Betis
Slapp
banner