32-liða úrslit Mjólkurbikars karla voru leikin um páskana, að einum leik undanskildum. Leik ríkjandi bikarmeistara Vestra gegn Leikni var frestað en hann verður spilaður á Ísafirði á laugardag.
Dregið verður í 16-liða úrslit á morgun, fimmtudaginn 9. apríl klukkan 12:00 í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli.
Dregið verður í 16-liða úrslit á morgun, fimmtudaginn 9. apríl klukkan 12:00 í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli.
Athyglisvert er að fimm lið úr Bestu deildinni féllu úr leik í 32-liða úrslitum; ÍBV, Þór, Fram, Keflavík og Valur. Þessi lið verða í pottinum í 16-liða úrslitum:
Besta deildin: KR, ÍA, Stjarnan, Víkingur, Breiðablik, KA, FH
Lengjudeildin: Afturelding, Fylkir, Njarðvík, Þróttur, Grindavík, HK, Grótta, Ægir, Vestri/Leiknir


