Tvær lykilkonur hafa framlengt við Hauka en það eru þær Halla Þórdís Svansdóttir og Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir.
Viktoría er fædd árið 2007 og þrátt fyrir ungan aldur verið aðalmarkvörður Hauka síðustu þrjú tímabil og spilað yfir 70 leiki.
Hún á einnig að baki sjö leiki með yngri landsliðum Íslands og var á dögunum valin í U19 ára landsliðið fyrir undankeppni Evrópumótsins.
„Viktoría er akkúrat sú tegund af markmanni sem við viljum hafa í markinu hjá okkur, miðað við okkar leikstíl. Hún spilar eins og ellefti útileikmaðurinn og ég efast um að það sé annar markmaður á landinu sem tekur jafn mikinn þátt í uppspilinu og hún gerir hjá okkur. Ég er virkilega þakklátur fyrir að fá að halda áfram að vinna með Viktoríu, því hún er einn besti karakter sem ég hef þjálfað,“ sagði Hörður Bjarnar Hallmarsson, þjálfari Hauka, um Viktoríu.
Halla Þórdís Sveinsdóttir hefur þá framlengt við félagið út 2028.
Hún gekk í raðir Hauka frá Fram árið 2023 og hefur síðan þá skorað yfir fimmtíu mörk í meira en sjötíu leikjum.
„Halla hefur tekið miklum framförum á síðustu tímabilum, býr yfir miklum hraða og hefur verið afar öflug í markaskorun. Halla er frábær karakter og liðsfélagi og við erum heppin að hafa hana hjá okkur,“ sagði Hörður um Höllu.
Haukar höfnuðu í 6. sæti Lengjudeildarinnar á síðasta ári en liðið lék þá sem nýliði eftir að hafa unnið 2. deild árið á undan.


