Tottenham lítur í kringum sig eftir markverði, Liverpool fylgist með ítölskum varnarmanni og leikmaður Forest hefur valið á milli Manchester liðanna. Powerade býður þér upp á slúðurpakkann á degi hverjum.
Tottenham gæti gert tilboð í enska markvörðinn James Trafford (23) hjá Manchester City. Hann er hugsaður sem mögulegur arftaki Guglielmo Vicario (29) sem er orðaður við Inter. (Sun)
Argentínski miðjumaðurinn Enzo Fernandez (25) gerir sig tilbúinn undir að biðja um að vera seldur til að gera sumarleið til Real Madrid greiðari. (El Chiringuito)
Enski varnarmaðurinn Harry Maguire (33) hafnaði bandaríska félaginu Inter Miami áður en hann gerði nýjan samning við Manchester United, þar sem hann vill ljúka ferli sínum. (Sun)
Liverpool og Newcastle fylgjast grannt með ítalska varnarmanninum Marco Palestra (21) sem er hjá Cagliari á láni frá Atalanta. (TeamTalk)
Manchester United ætlar að selja úrúgvæska miðjumanninn Manuel Ugarte (24) í sumar en Galatasaray, Newcastle og Tottenham hafa öll áhuga. (Fabrizio Romano)
Útlit er fyrir að United muni missa af enska miðjumanninum Elliot Anderson (23) hjá Nottingham Forest sem vill frekar fara til Manchester City í sumar. (Mirror)
Marc Casado (22), miðjumaður Barcelona, er opinn fyrir því að yfirgefa félagið í sumar eftir ða hafa misst byrjunarliðssæti sitt. (SER Katalóníu)
Tyrkneska félagið Fenerbahce vill kaupa miðjumanninn Yves Bissouma (29) frá Tottenham í sumar. Þessi landsliðsmaður Malí hefur aðeins spilað átta leiki á tímabilinu. (TurkishFootball)
Tottenham og Chelsea hafa bæði áhuga á miðjumanninum Maxi Araujo (26) hjá Sporting Lissabon. Hann er úrúgvæskur landsliðsmaður sem getur bæði spilað á vinstri kantinum og sem vængbakvörður. (CaughtOffside)
Crystal Palace er nálægt því að tryggja sér vinstri bakvörðinn Harris Afzal (16) frá Queen's Park í Skotlandi. Hann er kallaður næsti Andy Robertson. (TeamTalk)
Chelsea horfir til þess að fá inn varnarmanninn Valentin Barco (21) frá systurfélaginu Strasbourg í sumar. Hann hefur leikið fyrir argentínska landsliðið og lék sex úrvalsdeildarleiki fyrir Brighton. FourFourTwo)
Joe Gelhardt (21), framherji Leeds sem hefur skorað þrettán mörk fyrir Hull í Champhionship-deildinni á tímabilinu, er á óskalista skoska stórliðsins Rangers frá Glasgow. (FootballInsider)

