Afturelding og Fjölnir mætast í undanúrslitum C-deildar Lengjubikars kvenna klukkan 18:00 en alls eru tveir leikir á dagskrá í meistaraflokki þennan daginn.
Fjölniskonur höfnuðu í öðru sæti A-riðils með 7 stig á meðan Afturelding var á toppnum í B-riðli með fullt hús stiga.
Leikurinn hefst klukkan 18:00 en sigurvegarinn mun mæta Fylki í úrslitum sem slátraði ÍR, 8-0, í hinum undanúrslitaleiknum.
Í C-deild karla mætast Smári og Hamar í D-riðli. Smári er í efsta sæti riðilsins með 7 stig en Hamar í 3. sæti með 4 stig.
Leikur dagsins:
Lengjubikar karla - C-deild, riðill 4
20:00 Smári-Hamar (Fagrilundur - gervigras)
Lengjubikar kvenna - C-deild - undanúrslit:
18:00 Afturelding - Fjölnir (Malbikstöðin að Varmá)


