Tottenham vill Trafford - Maguire hafnaði Inter Miami - Liverpool og Newcastle fylgjast með ítölskum varnarmanni
   mið 08. apríl 2026 08:30
Elvar Geir Magnússon
City telur sig hafa unnið United í baráttunni
Enski landsliðsmaðurinn Elliot Anderson.
Enski landsliðsmaðurinn Elliot Anderson.
Mynd: EPA
Manchester City telur sig hafa unnið baráttuna við grannana í Manchester United um Elliot Anderson, leikmann Nottingham Forest. Mirror greinir frá.

City telur sig geta landað Anderson fyrir 65 milljónir punda.


Chelsea og Tottenham hafa líka sýnt leikmanninum áhuga en talið er að City sé í lykilstöðu til að landa honum. Þessi 23 ára leikmaður hefur látið vita af því að þeir ljósbláu séu efstir á hans blaði.

City vill ganga frá málum áður en Anderson heldur með enska landsliðinu á HM.

Leikmaðurinn var keyptur til Forest frá Newcastle 2024 fyrir um 20 milljónir punda og hefur virkilega vel á tímabilinu. Eftir því hefur verið tekið og um það talað.
Slapp
banner
banner