Alvaro Arbeloa, bráðabirgðaþjálfari Real Madrid, tapaði sjötta leik sínum sem þjálfari liðsins er liðið lá fyrir Bayern München í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.
Arbeloa tók við keflinu af Alonso sem var látinn taka poka sinn eftir tæpa átta mánuði í starfi.
Á þessu tímabili tapaði Real Madrid aðeins fimm leikjum undir Alonso, en stigasöfnunin var ekki eina vandamálið heldur var talið að hann hafi misst traust innan klefans og að leikstíllinn hafi einfaldlega ekki hentað liðinu.
Síðan Arbeloa tók við hefur þetta ekki beint verið dans á rósum þó liðið hafi unnið nokkra sterka sigra. Í þeim nítján leikjum sem hann hefur verið á hliðarlínunni hefur liðið tapað sex sinnum.
Real Madrid er komið með bakið upp við vegg í einvígi sínu við Bayern og er sjö stigum á eftir Barcelona í baráttu um spænska deildarmeistaratitilinn ásamt því að vera úr leik í spænska konungsbikarnum.
Real Madrid's defeats this season:
— ESPN FC (@ESPNFC) April 7, 2026
-With Álvaro Arbeloa: 6 in 19 matches.
-With Xabi Alonso: 5 in 28 matches. pic.twitter.com/mOK8Ov7svw


