Gabríel Hrannar Eyjólfsson er búinn að framlengja samning sinn við KR og er nú bundinn félaginu næstu fjögur keppnistímabil, út tímabilið 2029.
Gabríel Hrannar hefur verið mikilvægur hlekkur í liði KR frá því að hann skipti yfir frá Gróttu fyrir einu og hálfu ári síðan.
Hann er búinn að spila 54 leiki fyrir KR frá félagaskiptunum og er búinn að spila alla leiki liðsins í Bestu deildinni á yfirstandandi leiktíð. Hann hefur lagt upp þrjú mörk og skorað eitt á tímabilinu.
„Við hlökkum til að sjá Gabríel í KR-treyjunni á komandi árum," segir meðal annars í færslu frá KR.


