Geggjað að spila með svona góðum stelpum
„Geggjað að komast áfram, það var markmiðið og alltaf gaman að spila í bikarnum. Það var mjög fínt að spila þennan leik, geggjað veður," segir Snædís María Jörundsdóttir sem skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna í bikarsigri gegn Þór/KA í kvöld.
Snædís skoraði fyrsta og annað mark liðsins í 1-4 sigri. Bæði mörkin komu eftir góðar stoðsendingar en hún afgreiddi mjög vel í bæði skiptin. „Það er geggjað að vera spila með svona góðum stelpum sem hjálpa manni að skora."

Lestu um leikinn: Þór/KA 1 - 4 Stjarnan
Liðsfélagar hennar fóru með rútu til Varmahlíðar í gær og kláruðu ferðalagið til Akureyrar í dag. Snædís fór hins vegar með flugi þar sem hún var í lokaprófi í dag.
„Ég tók sjálf flug, þær komu í gær, þannig ferðalagið mitt var fínt. Ég var í prófi í morgun sem gekk mjög vel," segir Snædís María. Mörkin má sjá hér að neðan.