Éderson kostar 45 milljónir evra
Manchester United er í viðræðum við Atalanta varðandi kaup á brasilíska miðjumanninum Éderson.
Éderson hefur verið algjör lykilmaður í liði Atalanta á tímabilinu og vakti það furðu þegar hann var ekki valinn í brasilíska landsliðshópinn fyrir HM í sumar.
Hann á aðeins fjóra A-landsleiki að baki fyrir Brasilíu en hefur verið mikilvægur hlekkur í sterku liði Atalanta á síðustu árum og var í byrjunarliðinu sem vann úrslitaleik Evrópudeildarinnar gegn Bayer Leverkusen fyrir tveimur árum. Hann hefur spilað 180 leiki á fjórum árum hjá Atalanta og er meðal annars eftirsóttur af Atlético Madrid og Juventus.
Atalanta er reiðubúið til að selja miðjumanninn fyrir 45 milljónir evra þar sem hann á aðeins eitt ár eftir af samningi við félagið.
Rauðu djöflarnir eru einnig að skoða Elliot Anderson sem gæti reynst alltof dýr ásamt Carlos Baleba, Sandro Tonali, Adam Wharton og Mateus Fernandes.
Þá vantar helst tvo góða miðjumenn fyrir næstu leiktíð þar sem Kobbie Mainoo og Manuel Ugarte eru einir eftir í hópnum eftir brottför Casemiro.
12.05.2026 18:05
Man Utd eykur áhuga sinn á Ederson og Fernandes


