Gamla brýnið Steve McClaren hefur verið ráðinn yfirmaður fótboltamála hjá Rotherham. Hlutverkið er nýtt af nálinni hjá Rotherham sem féll niður í ensku D-deildina, League Two, í vetur.
McClaren er fyrrum landsliðsþjálfari Englands og verður hans fyrsta verk í starfi að finna nýjan aðalþjálfara fyrir liðið.
McClaren er fyrrum landsliðsþjálfari Englands og verður hans fyrsta verk í starfi að finna nýjan aðalþjálfara fyrir liðið.
McClaren hætti sem landsliðsþjálfari Jamaíku í nóvember eftir að hafa mistekist að koma þjóðinni á HM. Á undan því hafði hann verið í fimm ár frá þjálfun eftir að hafa verið látinn fara frá QPR.
McClaren er 65 ára, á sínum stjóraferli hefur hann gert Middlesbrough að deildabikarmeisturum (2004) og Twente að Hollandsmeisturum (2010).



