Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 13:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ólíklegt að Amorim taki við Benfica - Önnur nöfn nefnd
Mynd: EPA
Það þykir ólíklegt að Ruben Amorim sé tilbúinn að taka við sem stjóri Benfica í Portúgal. Það er talkSPORT sem greinir frá.

Portúgalska stórliðið ræddi við Amorim um stöðuna sem er laus eftir að Jose Mourinho ákvað að taka við Real Madrid. Viðræðurnar sigldu í strand.

Amorim hefur verið án félags frá því að hann var látinn fara frá Manchester United í janúar.

Amorim lék á sínum tíma með Benfica og er Rui Costa, forseti félagsins, aðdáandi stjórans. Amorim lék með Benfica þegar Costa var yfirmaður fótboltamála.

Marco Silva hjá Fulham hefur einnig verið orðaður við Benfica. Xavi Hernandez, Andoni Iraola, Thiago Motta hafa líka verið orðaður við félagið af portúgalska miðlinum Record.
Slapp
banner