Fotbolti.net
19.05.26 - 22:31
Ívan Guðjón Baldursson

Fimm sem kæmust í meistaraliðið frá 2004

Fimm sem kæmust í meistaraliðið frá 2004
Canon

Mynd: EPA

Patrick Vieira var í sjónvarpsverinu hjá Sky Sports þegar Arsenal tryggði sér Englandsmeistaratitilinn sitjandi á sófanum í kvöld.
1-1 jafntefli Manchester City á útivelli gegn Bournemouth innsiglaði titilinn fyrir Arsenal þegar ein umferð er eftir af deildartímabilinu. Vieira var strax spurður hvaða leikmenn úr meistaraliði Arsenal kæmust í Englandsmeistaraliðið sem fór ósigrað í gegnum úrvalsdeildartímabilið 2003-04.

Vieira var fyrirliði Arsenal það árið og myndi hann gera fimm breytingar á ósigrandi liði Arséne Wenger.

David Raya myndi taka stöðu Jens Lehmann á milli stanganna, Jurriën Timber kæmi inn í hægri bakvörðinn fyrir Lauren og Gabriel Magalhaes í hjarta varnarinnar fyrir Kolo Touré.

Bukayo Saka færi á hægri kantinn fyrir Fredrik Ljungberg og Declan Rice á miðjuna fyrir Gilberto Silva.

Sameinað meistaralið Arsenal (4-4-2):
David Raya
Jurriën Timber
Sol Campbell
Gabriel Magalhaes
Ashley Cole
Bukayo Saka
Patrick Vieira
Declan Rice
Robert Pires
Dennis Bergkamp
Thierry Henry
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.