Spænska stórveldið Atlético Madrid ætlar að styrkja sig í sumar og horfir til ensku úrvalsdeildarinnar.
Greint hefur verið frá því að Atlético náði samkomulagi við Wolves um kaupverð fyrir brasilíska miðjumanninn Joao Gomes sem kostar 45 milljónir evra.
Sky Sports segir frá áhuga Atlético á tveimur reynslumiklum úrvalsdeildarleikmönnum, spænska bakverðinum Marc Cucurella og portúgalska miðjumanninum Bernardo Silva.
Mathieu Alemany, fyrrum yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona sem starfar í dag hjá Atlético, hefur miklar mætur á Cucurella sem er með tvö ár eftir af samningi sínum við Chelsea.
Cucurella er 27 ára gamall og er talið að enska stórveldið myndi sætta sig við um 50 milljónir punda til að selja bakvörðinn. Cucurella hefur verið fastamaður í byrjunarliði Chelsea síðustu tvö tímabil og varð Evrópumeistari með Spánverjum fyrir tveimur árum.
Það gæti reynst erfiðara að krækja í Bernardo Silva vegna mikillar samkeppni enda verður hann samningslaus í sumar. Barcelona og Juventus eru meðal félagsliða sem hafa verið orðuð við portúgalska landsliðsmanninn og hefur sádi-arabíska deildin mikinn áhuga á honum.
Heimildarmaður Sky segir að draumur leikmannsins sé að spila fyrir Barcelona, en hann á eftir að taka ákvörðun um framtíðina. Atlético hefur áhuga en samkeppnin gæti reynst of erfið.
Bernardo Silva er 31 árs gamall og hefur spilað 459 keppnisleiki á níu árum hjá Manchester City.





