Khadija Shaw var á dögunum valin besti leikmaður tímabilsins í efstu deild kvenna á Englandi. Hún var markahæsti leikmaður deildarinnar þriðja tímabilið í röð og hjálpaði Manchester City að vinna langþráðan Englandsmeistaratitil eftir tíu ára bið.
Á þessum tíu árum hefur Man City fimm sinnum endað í öðru sæti og því er áfanginn einstaklega sætur.
Það skyggir þó á titilinn að Shaw virðist vera á förum frá félaginu þegar samningurinn rennur út. Hún hefur verið sterklega orðuð við Chelsea en stórveldi á Spáni og í Bandaríkjunum eru einnig áhugasöm.
Shaw gæti þó orðið áfram í Manchester ef félagið reiðir fram nægilega gott samningstilboð. Chelsea vill gera Shaw að launahæstu fótboltakonu heims og gæti verið að Man City þurfi að jafna það tilboð til að halda henni.
25.04.2026 11:02
Gæti orðið ein launahæsta fótboltakona heims
Hún segist ætla að skoða framtíðina sína eftir úrslitaleik FA bikarsins gegn Brighton 31. maí.
„Ég hef alltaf sagt að Manchester er heimilið mitt. Fólkið hérna tók mér með opnum örmum og núna erum við loksins að ná markmiðum okkar sem eru að vinna titla. Núna fer öll einbeitingin á úrslitaleikinn og svo sjáum við til hvað gerist eftir það," segir Shaw.
„Ég er rólegur leikmaður og framlag mitt á vellinum talar sínu máli. Þetta er eitthvað sem ég get haft stjórn á, en ég get ekki haft stjórn á því hvort ég verði áfram hjá Man City eða ekki.
„Framtíðin mín veltur á samræðunum sem við munum eiga við félagið. Það sem ég get stjórnað er frammistaðan mín á vellinum."



