Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 10:30
Kári Snorrason
Dowman yngsti Englandsmeistari sögunnar
Dowman er fæddur á gamlársdag 2009.
Dowman er fæddur á gamlársdag 2009.
Mynd: EPA
Tekur metið af Phil Foden.
Tekur metið af Phil Foden.
Mynd: EPA
Max Dowman er orðinn yngsti Englandsmeistari sögunnar. Hann verður 16 ára og 144 daga gamall á sunnudag þegar Arsenal tekur formlega við Englandsmeistaratitlinum.

Dowman hefur slegið hvert metið á fætur öðru í vetur.

Í ágúst varð hann yngsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, þá 15 ára og 235 daga gamall, og síðar yngsti leikmaður Meistaradeildarinnar, 15 ára og 308 daga gamall.

Hann bætti enn einu metinu við í mars þegar hann skoraði gegn Everton og varð þar með yngsti markaskorari í sögu úrvalsdeildarinnar, þá 16 ára og 73 daga gamall.

Til þess að teljast sem Englandsmeistari verður leikmaður að spila fimm úrvalsdeildarleiki en Dowman hefur spilað einmitt fimm leiki á tímabilinu, alla sem varamaður.

Hann tekur metið af Phil Foden sem var 17 ára og 350 daga gamall er hann vann sinn fyrsta Englandsmeistaratitil með City tímabilið 2017/18.

Tíu yngstu Englandsmeistararnir:
Max Dowman, 16 ára og 144 daga gamall, Arsenal 2025/26
Phil Foden, 17 ára og 350 daga gamall, Manchester City 2017/18
Rico Lewis, 18 ára og 188 daga gamall, Manchester City 2022/23
Brahim Diaz, 18 ára og 283 daga gamall, Manchester City 2017/18
Gael Clichy, 18 ára og 294 daga gamall, Arsenal 2003/04
Rafael da Silva, 18 ára og 319 daga gamall, Manchester United 2008/09
Nicolas Anelka, 19 ára og 57 daga gamall, Arsenal 1997/98
Neco Williams, 19 ára og 104 daga gamall, Liverpool 2019/20
Phil Neville, 19 ára og 105 daga gamall, Manchester United 1995/96
Ryan Giggs, 19 ára og 161 dags gamall, Manchester United 1992/93



Slapp
banner