Fotbolti.net
20.05.26 - 12:07
Kári Snorrason

Liverpool frumsýnir nýja treyju í lokaumferðinni

Isak og Van Dijk taka sig vel út í nýju treyjunni.

Isak og Van Dijk taka sig vel út í nýju treyjunni.

Canon

Mynd: Liverpool

Liverpool kynnti í gær nýja heimabúninginn fyrir næsta tímabil. Búningurinn sækir innblástur í treyju liðsins frá tímabilinu 1989/90, þegar Liverpool varð Englandsmeistari.

Liverpool mun frumsýna nýja búninginn á sunnudag þegar liðið tekur á móti Brentford í lokaumferð ensku deildarinnar.

Liverpool hefur svo gott sem tryggt sér sæti í Meistaradeildinni á komandi leiktíð en Brentford er í harðri Evrópubaráttu.

Liverpool kynnti búninginn í gær með myndbandi þar sem sjá mátti ungan John Barnes, einn af lykilmönnum í meistaraliðinu 1990, ásamt Florian Wirtz.

Margir netverjar hafa þó sett spurningarmerki við að yngri útgáfa Barnes hafi verið búin til með gervigreind í stað þess að fá hann sjálfan í auglýsinguna.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.