Wolfsburg og Paderborn eigast við í fyrri úrslitaleik liðanna um síðasta lausa sætið í efstu deild þýska boltans á næstu leiktíð.
Wolfsburg endaði í þriðja neðsta sæti deildarinnar eftir dramatískan sigur gegn St. Pauli í lokaumferðinni og spilar því umspilsleiki við þriðja sætið úr næstefstu deild.
Paderborn rétt náði þriðja sætinu í næstefstu deild með sigri í síðustu umferð deildartímabilsins og þökk sé hagstæðum úrslitum í sex marka jafntefli Hannover gegn Nürnberg.
Liðin eigast við í Wolfsburg í kvöld og fer seinni leikurinn fram í Paderborn næsta mánudagskvöld.
Umspil um sæti í Bundesliga
18:30 Wolfsburg - Paderborn



