Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   fim 21. maí 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Casemiro með nokkur tilboð á borðinu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fótboltafréttamaðurinn vinsæli Fabrizio Romano greinir frá því að Inter Miami sé komið í alvarlegar viðræður við brasilíska miðjumanninn Casemiro sem verður samningslaus eftir fjögur ár með Manchester United.

Þrátt fyrir að vera 34 ára gamall hefur Casemiro átt feykilega gott tímabil í ensku úrvalsdeildinni og er sagður vera afar spenntur fyrir tilhugsuninni um að spila fyrir Inter í MLS deildinni.

Hann er þó afar eftirsóttur og er með samningstilboð á borðinu frá Evrópu og Sádi-Arabíu.

Casemiro er fyrirliði brasilíska landsliðsins sem fer á HM og leikur riðilinn sinn á Austurströndinni. Fyrstu tveir leikirnir fara fram í norðurhlutanum en síðasti leikurinn gegn Skotlandi er einmitt í Miami.

Talið er að Casemiro vilji ganga frá samningsmálum og skrifa undir áður en HM fer af stað um miðjan júní. Inter hefur því ekki mikinn tíma til að sannfæra Brassann um að Miami sé rétta valið fyrir hans framtíð.

Casemiro lék vel yfir 300 leiki á átta árum hjá Real Madrid áður en hann flutti til Manchester þar sem hann á yfir 150 leiki að baki.

   02.05.2026 14:48
Inter Miami líklegasti áfangastaður Casemiro

Slapp
banner
banner