Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano greinir frá því að tyrkneski markvörðurinn Altay Bayindir er til sölu í sumar.
Bayindir er 28 ára gamall og með eitt ár eftir af samningi við Manchester United, með möguleika á auka ári.
Tyrkinn hefur í heildina spilað 17 leiki á þremur árum hjá Rauðu djöflunum en hann var upprunalega fenginn til félagsins sem varaskeifa fyrir André Onana.
Þegar Onana byrjaði að skeika á milli stanga Man Utd prófaði Rúben Amorim þjálfari að nota Bayindir á milli stanganna en sá fljótt eftir því þegar Tyrkinn gerðist sekur um slæma röð mistaka.
Ljóst er að Bayindir á sér ekki framtíð hjá Rauðu djöflunum og er félagið reiðubúið til að selja hann á sömu upphæð og hann var keyptur fyrir úr röðum Fenerbahce sumarið 2023, eða 5 milljónir evra.
Besiktas hefur sýnt Bayindir mikinn áhuga en þjálfaraskipti hjá tyrkneska stórveldinu gætu sett möguleg félagaskipti í uppnám.
26.02.2026 07:30
Fer frá Man Utd í sumar


