Brighton hefur mikinn áhuga á að fá Charlie Cresswell aftur til Englands og ætlar að reyna að kaupa hann í sumar.
Úrvalsdeildarfélagið reyndi að kaupa Cresswell úr röðum Toulouse í janúarglugganum en franska félagið hafnaði kauptilboðum frá Brighton og Wolfsburg sem hljóðuðu uppá 25 milljónir evra.
Cresswell er 23 ára og hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Toulouse frá komu sinni fyrir tveimur árum. Hann er uppalinn hjá Leeds og vann EM U21 árs landsliða tvisvar sinnum með Englandi.
Brighton vantar miðvörð til að fylla í skarðið fyrir Adam Webster sem rennur út á samningi í sumar og þá gæti liðið selt eftirsóttan Jan Paul van Hecke ef nægilega gott tilboð berst.
Toulouse borgaði aðeins um 2 milljónir evra til að kaupa Cresswell frá Leeds og sýndu úrvalsdeildarfélögin West Ham og Crystal Palace honum einnig áhuga í janúar.
Brighton er líka í leit að hægri bakverði, miðjumanni, kantmanni og framherja í sumar.
Cresswell er með tvö ár eftir af samningi hjá Toulouse.
28.01.2026 08:30
Toulouse hafnaði tilboði frá Brighton

