Kyle McLagan var ekki í leikmannahópi Fram sem gerði 2-2 jafntefli við KR á Meistaravöllum á sunnudag. Kyle hafði byrjað alla leiki Fram fram að þessum.
Þá fór Þorri Stefán Þorbjörnsson út af velli seint í leiknum. Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var spurður út í stöðuna á hafsentunum tveimur eftir leik.
Þá fór Þorri Stefán Þorbjörnsson út af velli seint í leiknum. Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var spurður út í stöðuna á hafsentunum tveimur eftir leik.
„Ég held að Þorri hafi bara fengið krampa, hann tók vel á því. Kyle er að glíma við smávægileg meiðsli, ekki alvarleg,“ sagði Rúnar og hélt áfram.
„Israel kom frábær inn, við eigum Badda og Arnar Daníel líka inni. Við leysum þetta, það verður ekkert vandamál. Þetta er eitthvað sem við þurfum að geta tekist á við, sagði Rúnar jafnframt.
Fram mætir Stjörnunni í Garðabæ á föstudagskvöld, liðið hefur byrjað vel og er í þriðja sæti deildarinnar.
Besta karla
18:00 KA-Valur (Greifavöllurinn)
18:00 Keflavík-Þór (HS Orku völlurinn)
19:15 Víkingur R.-FH (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Fram (Samsungvöllurinn)
19:15 Breiðablik-KR (Kópavogsvöllur)



