Útlit er fyrir að Spánverjinn Luis Enrique sé búinn að samþykkja nýjan fjögurra ára samning hjá franska stórveldinu Paris Saint-Germain.
Fabrizio Romano er meðal þeirra sem greina frá og segir einungis eiga eftir að leggja lokahönd á smáatriði í samningnum.
Búist er við að Luis Enrique muni skrifa undir eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Arsenal.
PSG hefur náð frábærum árangri með Enrique við stjórnvölinn og fær tækifæri til að verja Meistaradeildartitilinn sinn í lok mánaðar. PSG yrði þá annað liðið frá stofnun nýrrar Meistaradeildar árið 1992 til þess að vinna keppnina tvö ár í röð, eftir að Real Madrid vann þrjú ár í röð undir stjórn Zinedine Zidane.
Enrique tók við stjórn á PSG fyrir þremur árum og hefur liðið unnið frönsku deildina nokkuð þægilega þrisvar í röð.



