Katla María Þórðardóttir, fyrirliði FH, hefur lokið keppni á tímabilinu eftir að í ljós kom að hún er með slitið krossband.
Þetta eru ömurlegar fréttir fyrir Kötlu Maríu og FH liðið sem er í þriðja sæti Bestu deildarinnar með 7 stig eftir 4 umferðir.
Katla er mikilvægur hlekkur í liði FH. Hún missti aðeins af tveimur leikjum í deild og bikar í fyrra og var búin að spila alla leiki FH á nýju tímabili þegar hún meiddist í sigri gegn Stjörnunni fyrir rúmri viku síðan.
Þessar fregnir berast á svipuðum tíma og fregnir af Jóhanni Ægi Arnarssyni sem sleit krossband og reif liðþófa í gærkvöldi. Jóhann Ægir leikur með Njarðvík á láni frá FH.
19.05.2026 19:27
Jóhann sleit krossband og reif liðþófa




