Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   þri 19. maí 2026 23:58
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir kvöldsins: Kroupi og Enzo bestir
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Sky Sports er búið að gefa leikmönnum einkunnir eftir leiki kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.

Eli Junior Kroupi var besti maður vallarins er Bournemouth gerði jafntefli við Manchester City í mikilvægum slag sem gerði út um titilvonir Man City.

Kroupi er aðeins 19 ára gamall og hefur verið frábær á sínu fyrsta tímabili í enska boltanum.

David Brooks var versti maður vallarins með 4 í einkunn. Hann kom inn af bekknum og reyndist skúrkurinn þegar hann klúðraði tveimur gullnum marktækifærum til að gera út um viðureignina fyrir heimamenn.

Enzo Fernández var þá besti leikmaður vallarins í naumum sigri Chelsea gegn fallbaráttuliði Tottenham í öðrum gífurlega mikilvægum slag. Sigurinn setur Chelsea í bílstjórasætið í baráttunni um Sambandsdeildarsæti á meðan Tottenham getur enn fallið í lokaumferðinni.

Enzo skoraði fyrsta mark leiksins og lagði næsta mark upp fyrir Andrey Santos. Hann er eini leikmaður vallarins sem fær 8 í einkunn fyrir sinn þátt.

Liam Delap, Destiny Udogie og Randal Kolo Muani voru verstu leikmenn vallarins með 5 í einkunn.

Bournemouth: Petrovic (8); Smith (7), Hill (8), Senesi (8), Truffert (8); Adams (7), Tavernier (7), Scott (6); Rayan (7), Evanilson (7), Kroupi (8)
Varamenn: Kluivert (6), Brooks (4)

Man City: Donnarumma (7); Nunes (6), Khusanov (5), Guehi (6), O’Reilly (6); Rodri (7), Kovacic (6), Bernardo (6); Semenyo (5), Haaland (7), Doku (7)
Varamenn: Foden (5), Cherki (5), Savinho (5), Marmoush (6)



Chelsea: Sanchez (7), Acheampong (7), Hato (7), Fofana (6), Cucurella (7), Caicedo (7), Santos (7), Neto (6), Palmer (7), Fernandez (8), Delap (5).
Varamenn: Chalobah (6), Sarr (6)

Tottenham: Kinsky (6), Porro (6), Danso (6), Van de Ven (7), Udogie (5), Palhinha (7), Bentancur (6), Gallagher (6), Kolo Muani (5), Richarlison (7), Tel (7).
Varamenn: Maddison (7), Sarr (7), Spence (7).
Slapp
banner
banner