Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 20:44
Ívan Guðjón Baldursson
Khadija Shaw best á Englandi
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Hin hæfileikaríka Khadija Shaw var valin sem besti leikmaður tímabilsins í efstu deild kvenna á Englandi eftir að hún skoraði 21 mark í 22 leikjum með Manchester City.

Shaw var í lykilhlutverki er Man City vann sinn fyrsta Englandsmeistaratitil í kvennaflokki eftir heilan áratug án þess að hampa titlinum.

Shaw var markahæsti leikmaður deildarinnar þriðja árið í röð en samningur hennar við City rennur út í sumar og hefur risaveldi Chelsea verið sterklega orðað við hana. Talað er um að Chelsea ætli að gera Shaw að launahæstu fótboltakonu heims.

   25.04.2026 11:02
Gæti orðið ein launahæsta fótboltakona heims


Þegar City liðið fagnaði titlinum á sunnudaginn heyrðust stuðningsmenn syngja „við viljum halda Bunny!" sem er gælunafnið hennar Shaw.

Shaw, sem er landsliðskona Jamaíku, getur hjálpað City að vinna enska bikarinn þegar liðið mætir Brighton í úrslitaleiknum 31. maí.

Hún var valin besti leikmaður ársins á undan liðsfélaga sínum Kerstin Casparij sem var mætt á verðlaunaafhendinguna til að taka við verðlaununum fyrir hönd Shaw, sem ákvað að mæta ekki. Alessia Russo hjá Arsenal og Kirsty Hanson hjá Aston Villa komu einnig til greina sem leikmaður ársins. Jess Park, Alyssa Thompson, Olivia Holdt og Ruby Mace komu einnig til greina í ár.

Hannah Hampton, markvörður Chelsea, hlaut Gullhanskann fyrir að halda hreinu 8 sinnum í 19 leikjum og var Daphne van Domselaar hjá Arsenal verðlaunuð fyrir markvörslu tímabilsins.

Kirsty Hanson skoraði mark tímabilsins í 2-0 sigri Aston Villa gegn West Ham og var Veerle Buurman hjá Chelsea efnilegasti leikmaður deildartímabilsins.

WSL Player of the Season: Khadija Shaw (Manchester City)

WSL Golden Boot: Khadija Shaw (Manchester City)

WSL Rising Star: Veerle Buurman (Chelsea)

WSL Golden Glove: Hannah Hampton (Chelsea)

WSL Goal of the Season: Kirsty Hanson (Aston Villa)

WSL Save of the Season: Daphne van Domselaar (Arsenal)
Slapp
banner
banner