Guardiola í árs frí og tekur svo við landsliði - Alonso vill sóknarmann Brentford - Bowen eftirsóttur
   mið 20. maí 2026 15:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Breytingar á landsliðshópunum - Tvö ný nöfn
Eimskip
Adam Ingi er í fyrsta sinn valinn í A-landsliðshóp.
Adam Ingi er í fyrsta sinn valinn í A-landsliðshóp.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valgeir Lunddal er mættur aftur í landsliðshóp.
Valgeir Lunddal er mættur aftur í landsliðshóp.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Teitur færist milli hópa.
Stefán Teitur færist milli hópa.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Breytingar hafa orðið á landsliðshópunum fyrir komandi vináttuleiki gegn Japan og Argentínu. Sverrir Ingi Ingason átti að vera með gegn Japan en hann verður ekki með í leiknum. Þrír leikmenn bætast við þann hóp.

Adam Ingi Benediktsson, markvörður AB í Danmörku, kemur inn sem einn af þremur markvörðum og Valgeir Lunddal Friðriksson hjá Düsseldorf koma inn. Stefán Teitur Þórðarson hjá Hannover færist þá úr Argentínuhópnum og í Japanshópinn.

Adam hefur ekki spilað landsleik til þessa, Valgeir á að baki 16 leiki og Stefán Teitur 36 leiki. Adam hjálpaði AB að vinna dönsku C-deildina í vetur, Valgeir og félagar féllu úr þýsku B-deildinni en Hannover rétt missti af sæti í efstu deild eftir of mörg jafntefli á lokakaflanum.

Eftir þessar breytingar telur hópurinn fyrir Japansleikinn 21 leikmann og hópurinn fyrir Argentínuleikinn 22 leikmenn. Leikurinn fer fram í Tókýó 31. maí og leikurinn gegn Argentínu fer fram í Auburn aðfaranótt 10. júní.

Uppfærður hópur gegn Japan
Markverðir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 21 leikur
Ögmundur Kristinsson - Valur - 19 leikir
* Adam Ingi Benediktsson - AB

Útileikmenn
Alfons Sampsted - Go Ahead Eagles - 23 leikir
Dagur Dan Þórhallsson - CF Montreal - 8 leikir
* Valgeir Lunddal Friðriksson - Fortuna Düsseldorf - 16 leikir
Hjörtur Hermannsson - Volos F.C. - 30 leikir, 1 mark
Daníel Leó Grétarsson - Sonderjyske Fodbold - 29 leikir
Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 52 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Samsunspor - 14 leikir, 1 mark
Willum Þór Willumsson - NEC Nijmegen - 18 leikir
Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa S.K. - 12 leikir
Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan - 2 leikir
Aron Einar Gunnarsson - Al-Gharafa - 108 leikir, 5 mörk
* Stefán Teitur Þórðarson - Hannover 96 - 36 leikir, 1 mark
Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 29 leikir, 2 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 11 leikir, 2 mörk
Brynjólfur Andersen Willumsson - FC Groningen - 9 leikir, 1 mark
Stefán Ingi Sigurðarson - Go Ahead Eagles
Viktor Bjarki Daðason - FC Köbenhavn
Benoný Breki Andrésson - Stockport County F.C.

Uppfærður hópur gegn Argentínu
Markverðir
Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylland - 14 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 21 leikur
Anton Ari Einarsson - Breiðablik - 3 leikir

Útileikmenn
Guðlaugur Victor Pálsson - Horsens - 57 leikir, 5 mörk
Dagur Dan Þórhallsson - CF Montreal - 8 leikir
Hjörtur Hermannsson - Volos F.C. - 30 leikir, 1 mark
Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 52 leikir, 2 mörk
Daníel Leó Grétarsson - Sonderjyske Fodbold - 29 leikir
Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 29 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Samsunspor - 14 leikir, 1 mark
Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa - 12 leikir
Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 30 leikir, 3 mörk
Gísli Gottskálk Þórðarson - Lech Poznan - 2 leikir
Ísak Bergmann Jóhannesson - 1. FC Köln - 43 leikir, 6 mörk
Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur R. - 85 leikir, 28 mörk
Kristall Máni Ingason - SK Brann - 8 leikir
Arnór Sigurðsson - Malmö FF - 35 leikir, 2 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 11 leikir, 2 mörk
Jón Dagur Þorsteinsson - SK Brann - 54 leikir, 6 mörk
Albert Guðmundsson - ACF Fiorentina - 46 leikir, 14 mörk
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad - 17 leikir, 9 mörk
Daníel Tristan Guðjohnsen - Malmö FF - 5 leikir
Slapp
banner