Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 20:30
Sverrir Örn Einarsson
150 þúsund króna sekt Víkings stendur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingar þurfa að greiða 150.000 króna sekt vegna blysa sem kveikt var á við Víkingsvöll í 3-2 sigri Víkinga á Stjörnunni þann 23.apríl síðastliðinn. Þetta varð ljóst er áfrýjunardómstóll KSÍ birti niðurstöðu sína en Víkingar höfðu áfrýjað fyrri úrskurði aganefndar KSÍ um sektina.



Tvisvar sinnum í leiknum í tengsl við mörk Víkinga voru blys tendruð. Fyrst á 21.mínútu og svo aftur á þeirri 54. er Ívar Orri Kristjánsson tók ákvörðun um að stöðva leikinn vegna reyks um stund.

Málsvörn Víkinga byggðist að mestu á því að blysin hafi verið tendruð utan vallarsvæðis en í greinagerð þeirra stendur.

Heimild til sektarákvörðunar á grundvelli greinar 13.9 d) reglugerðar um aga- og
úrskurðarmál er einskorðuð við annars vegar forystumann, sem ekki er á leikskýrslu og
hins vegar áhorfanda. Grein 13.9 d) getur ekki verið túlkuð svo rúmt að hún nái annarra
aðila en þeirra sem sérstaklega eru tilgreindir í ákvæðinu. Hún geti þannig ekki náð til
aðila utan vallarsvæðis sem virtist tendra reykbombu eða reykblys við vallarsvæði Víkings.
Úrskurðir aga- og úrskurðarnefndar í málum sem varða atvikaskýrslur eftirlitsmanna
verða og geta ekki byggt á öðru en sjálfu efni þeirra. Nefndin hefur engar forsendur né
gögn sem geta stutt, að því er virðist, tilgátu um að áhorfandi hafi verið þar að verki, enda
komi það hvergi fram í umræddri skýrslu eftirlitsmanns né öðrum gögnum málsins. Þvert
á móti gefur skýrsla eftirlitsmanns afdráttarlaust til kynna að framkoma stuðningsmanna
heimaliðs hafi verið góð. Í ofanálag hafi áfrýjandi nú þegar vakið máls á því að um hafi
verið að ræða óþekktan einstakling utan vallar og utan svæðis leiksins.


Áfrýjunardómstóllinn komst þó að þeirri niðurstöðu að sektin skuli standa en i úrskurðinum stendur meðal annars.

Enga nákvæma skilgreiningu er að finna í reglugerðum KSÍ, UEFA eða FIFA á því hver telst „stuðningsmaður“ eða „áhorfandi“.
Getur það verið háð mati hverju sinni á grundvelli þátta á borð við hegðunar og nálægðar við
leikvang, sbr. dóm alþjóða íþróttadómstólsins CAS í máli CAS 2007/A/1217 (Feyenoord gegn
UEFA). Með vísan til þessara þátta og atvika máls þessa telur dómurinn að áhorfandi í skilningi
gr. d-liðar gr. 13.9. hafi kveikt á blysunum

Dóminn má lesa í heild sinni hér
Slapp
banner
banner