Crystal Palace færist nær fyrsta Evróputitlinum í sögu félagsins eftir að Jean-Philippe Mateta kom liðinu yfir gegn Rayo Vallecano í úrslitum Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.
Frakkinn kom Palace yfir á 51. mínútu leiksins með skoti af stuttu færi.
Adam Wharton átti hörkuskot sem markvörður Rayo varði út á Mateta sem var fljótur að átta sig og skilaði boltanum í autt netið.
Palace náði sögulegum árangri með því að komast í deildarkeppni í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins og getur haldið áfram að skrifa söguna ef liðið nær í sigur í kvöld.
Það myndi ekki bara færa Palace fyrsta Evróputitilinn heldur líka tryggja sæti í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á næstu leiktíð.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Sjáðu markið hjá Mateta


