Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
   mið 27. maí 2026 20:08
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeildin: Miklir yfirburðir Njarðvíkinga - Sigurmark HK kom seint
Lengjudeildin
Bragi Karl setti tvö gegn Vestra
Bragi Karl setti tvö gegn Vestra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Njarðvík vann sannfærandi 3-0 sigur á Vestra í 6. umferð Lengjudeildarinnar á Kerecis-vellinum á Ísafirði í kvöld. HK vann á meðan 1-0 sigur á Völsungi í Kórnum.

Yfirburði Njarðvíkinga voru ótrúlegir gegn bikarmeisturunum. Bragi Karl Bjarkason skoraði fyrsta markið á 11. mínútu leiksins. Njarðvíkingar spiluðu boltanum sín á milli áður en Vestri komst fyrir skotið og út á Braga sem skoraði.

Nokkrum mínútum síðar fengu gestirnir vítaspyrnu er Edson Gomes braut klaufalega á Freysteini Inga Guðnasyni. Bragi fór á punktinn og gerði annað mark sitt í leiknum.

Freysteinn skoraði þriðja markið undir lok fyrri hálfleiks. Langur bolti kom fram völlinn á Valdimar Jóhannsson sem fann Freystein á hægri vængnum. Hann skapaði sér pláss, kom sér í skotstöðu og kláraði vel.

Jonathan Oyal Awrohum, aðstoðarþjálfari Vestra, sá rauða spjaldið fyrir að mótmæla markinu.

Staðan 3-0 í hálfleik fyrir Njarðvík sem hefði hæglega getað skorað fleiri.

Það var aðeins rólegra yfir síðari hálfleiknum. Ibrahima Balde fékk fínt skallafæri en setti boltann framhjá og þá gat Bragi Karl fullkomnað þrennuna tuttugu mínútum fyrir leikslok en Guðmundur Páll Einarsson kom sér fyrir skotið á síðustu stundu.

Frábær sigur Njarðvíkinga sem eru í 5. sæti með 8 stig en Vestri í 8. sæti með 7 stig.

Sanngjarn sigur HK

HK-ingar unnu sanngjarnan 1-0 sigur á Völsungi í Kórnum.

Fyrri hálfleikurinn var ekki upp á marga fiska. HK-ingar skoruðu mark sem var dæmt af vegna rangstöðu og þá átti Karl Ágúst Karlsson átti þá sendingu inn á teiginn og þaðan fór boltinn í stöngina.

Í þeim síðari héldu HK-ingar áfram að pressa. Indriði Ketilsson bjargaði frábærlega á línu á 70. mínútu eftir að Dominik Radic hafði komist framhjá Jochum í markinu og þá var annað mark dæmt af HK stuttu síðar.

Þeir gáfu ekki upp von á að ná í sigurmark og kom það fyrir rest er Jóhann Þór Arnarsson fékk lausan bolta eftir hornspyrnu og kom honum í netið.

Tumi Þorvarsson gat gert út um leikinn nokkrum mínútum síðar er hann komst einn í gegn en Jochum náði að setja tærnar í boltann og halda Völsungi inn í leiknum.

Gestirnir náðu ekki að svara fyrir sig og lokatölur því 1-0, HK í vil, en Völsungur er áfram án sigurs með aðeins tvö stig í næst neðsta sæti á meðan HK er í 2. sæti með 12 stig.

HK 1 - 0 Völsungur
1-0 Jóhann Þór Arnarsson ('83 )
Lestu um leikinn

Vestri 0 - 3 Njarðvík
0-1 Bragi Karl Bjarkason ('11 )
0-2 Bragi Karl Bjarkason ('18 , víti)
0-3 Freysteinn Ingi Guðnason ('42 )
Rautt spjald: Jonathan Oyal Awrohum, Vestri ('42) Lestu um leikinn
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Fylkir 5 4 0 1 8 - 3 +5 12
2.    Þróttur R. 5 3 1 1 12 - 6 +6 10
3.    Afturelding 5 3 1 1 14 - 11 +3 10
4.    HK 5 3 0 2 12 - 9 +3 9
5.    Njarðvík 6 2 2 2 5 - 4 +1 8
6.    ÍR 5 2 1 2 14 - 12 +2 7
7.    Grindavík 5 1 4 0 6 - 4 +2 7
8.    Vestri 6 2 1 3 10 - 15 -5 7
9.    Leiknir R. 5 1 3 1 4 - 6 -2 6
10.    Grótta 5 2 0 3 9 - 12 -3 6
11.    Völsungur 5 0 2 3 2 - 8 -6 2
12.    Ægir 5 0 1 4 2 - 8 -6 1
Slapp
banner
banner