Andy Robertson færist nær því að ganga í raðir Tottenham. Samningur bakvarðarins við Liverpool rennur út í sumar og hafði hann tilkynnt um að hann myndi yfirgefa félagið í sumar.
BBC greinir frá því að hann sé kominn með samkomulag við Tottenham en einhver formsatriði séu eftir.
Útlit var fyrir að Robertson myndi ganga til liðs við Tottenham í janúar en Liverpool hætti við söluna þegar félaginu tókst ekki að kalla Kostas Tsimikas til baka úr láni hjá Roma.
Robertson lék 378 leiki fyrir Liverpool og vann þar tvo Englandsmeistaratitla og Meistaradeildina. Hann á einnig 92 landsleiki fyrir Skotland og verður fyrirliði liðsins á HM í sumar.



