Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 28. febrúar 2026 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjaði ekki leik en er samt leikmaður mánaðarins
Benjamin Sesko.
Benjamin Sesko.
Mynd: EPA
Benjamin Sesko hefur verið valinn leikmaður mánaðarins hjá Manchester United í febrúar. Hann átti einnig mark mánaðarins hjá félaginu.

Sesko byrjaði ekki leik í mánuðinum en hann kom inn á sem varamaður í fjórum leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

Í þessum leikjum skoraði hann þrjú mörk, sigurmörk gegn Fulham og Everton og jöfnunarmark gegn West Ham.

Mark hans gegn West Ham var jafnframt valið mark mánaðarins hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner