Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
   fös 27. febrúar 2026 16:16
Kári Snorrason
Tómas Óli fær nýjan samning í afmælisgjöf
Tómas Óli fagnar átján ára afmælisdeginum í dag.
Tómas Óli fagnar átján ára afmælisdeginum í dag.
Mynd: AGF
Hinn ungi og efnilegi Tómas Óli Kristjánsson hefur framlengt samning sinn við danska félagið AGF til ársins 2030.

Tómas, sem fagnar átján ára afmælisdeginum í dag, er sóknarsinnaður miðjumaður. Hann hefur komið við sögu í sjö leikjum AGF á tímabilinu en liðið trónir á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar.

Þessi uppaldni Garðbæingur á að baki 24 landsleiki fyrir yngri landsliðin og hefur hann skorað í þeim 9 mörk.

„Ég er stoltur af nýja samningnum og hlakka til að halda áfram að bæta mig. Ég hlakka jafnframt mikið til komandi ára hér hjá AGF,“ segir Tómas við heimasíðu AGF.

„Það er frábær tilfinning að finna að félagið trúir á mig. Ég reyni að leggja hart að mér á hverjum degi og einbeita mér að minni þróun sem leikmaður og hér hjá AGF hef ég frábærar aðstæður til þess,“ segir Tómas að lokum.


Athugasemdir
banner