Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
banner
   fös 27. febrúar 2026 17:37
Kári Snorrason
FH hefur áhuga á Breka Baldurs
Breki var keyptur til Esbjerg sumarið 2024.
Breki var keyptur til Esbjerg sumarið 2024.
Mynd: Esbjerg
FH hefur áhuga á að sækja Breka Baldursson, miðjumann Esbjerg, í sínar raðir. Frá þessu var greint í hlaðvarpinu Dr. Football og samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur FH kannað möguleikann á að fá hann.

Breki er nítján ára miðjumaður sem fór út til Danmerkur og gekk í raðir Esbjerg sumarið 2024. Breki er uppalinn í Fram og spilaði hann samtals 42 leiki fyrir meistaraflokk Fram og skoraði tvö mörk áður en hann fór út.

Hann hefur leikið 16 keppnisleiki með aðalliði Esbjerg eftir að hann fór í atvinnumennsku. Á tímabilinu hefur hann aðeins spilað 35 mínútur í dönsku B-deildinni. Hann er samningsbundinn félaginu út tímabilið 2028.

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, sagði í samtali við Fótbolta.net fyrr í vikunni að hann vonaðist til að Breki myndi vera áfram úti en ef hugurinn leitaði heim þá stæði hurðin í Úlfarsárdal opin.

Líklegt er að fleiri íslensk félög hafi áhuga á leikmanninum ef möguleiki verður á því að fá hann.

Athugasemdir
banner
banner