Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 13:44
Elvar Geir Magnússon
Osimhen fagnaði ekki af virðingu við Spalletti
Osimhen skoraði gríðarlega mikilvægt mark.
Osimhen skoraði gríðarlega mikilvægt mark.
Mynd: EPA
Luciano Spalletti
Luciano Spalletti
Mynd: EPA
Victor Osimhen skoraði gríðarlega mikilvægt mark sem greiddi leið Galatasaray í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Hann kom tyrkneska liðinu yfir í einvíginu í framlengingu.

Athygli vakti að þessi fyrrum leikmaður Napoli fagnaði ekki markinu sínu og var spurður út í það.

„Mér fannst mikilvægt að sýna manni sem mér þykir vænt um virðingu, manni sem hafði mikilvægt hlutverk á mínum ferli. Ég er augljóslega að tala um Spalletti. Ég fann ekki þörf á að fagna," sagði Osimhen.

Luciano Spalletti stjóri Juventus hélt um stjórnartaumana hjá Napoli þegar liðið vann Ítalíumeistaratitilinn fræga 2023 en Osimhen héldu þá engin bönd í markaskorun.

Það var mikil dramatík í leiknum í gær, Juventus náði að vinna upp þriggja marka tap í fyrri leiknum og koma leiknum í framlengingu þrátt fyrir að missa mann af velli með rautt spjald. Galatasaray kláraði hinsvegar dæmið í seinni hálfleik.

„Við spiluðum illa, jafncel þegar við vorum fleiri," segir Osimhen.
Athugasemdir
banner
banner