Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 28. febrúar 2026 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Van Persie: Þá skilurðu ekki neitt
Raheem Sterling.
Raheem Sterling.
Mynd: EPA
Robin van Persie, stjóri Feyenoord í Hollandi, segir gagnrýnina sem Rhaeem Sterling hefur fengið eftir félagaskipti sín til félagsins vera ósanngjarna.

Sterling skipti nýverið yfir til Feyenoord í Hollandi eftir erfiðan tíma hjá Chelsea. Sterling átti erfiðan fyrsta leik með Feyenoord og fann sig ekki alveg.

Í Instagram færslu hjá Football Park var mikið skotið á Sterling. „Enski kantmaðurinn leit út eins og bambi á ís," stóð í færslunni og þar var jafnframt ýjað að því að kantmaðurinn þyrfti að leggja skóna á hilluna. Sterling var einnig gagnrýndur í hollenskum fjölmiðlum.

„Ég skil að það eru væntingar til hans en að gagnrýna hann svona eftir hálftíma - hans fyrsta hálftíma á vellinum eftir meira en sex mánuði - þá skilurðu ekki neitt," sagði Van Persie.

„Ef hann er ekki að standa sig eftir fimm til sex vikur, þá allt í lagi. En að henda út svona sterkum skoðunum eftir hálftíma, mér fannst það frekar óviðeigandi."

Sterling spilaði ekkert með Chelsea á tímabilinu og æfði bara einn þar sem hann var algjörlega út í kuldanum áður en hann gekk í raðir Feyenoord. Hann hafði ekkert spilað fótbolta síðan í maí á síðasta ári áður en hann fór til Hollands.
Athugasemdir
banner
banner