Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar skoraði bæði mörk Santos sem vann sinn fyrsta leik í Seríu A í Brasilíu með því að leggja Vasco da Gama að velli, 2-1, á heimavelli.
Margir hafa gagnrýnt Neymar síðustu daga og töldu hann vera kominn yfir hæðina.
Neymar, sem er 34 ára gamall, er enn að gera sér vonir um að komast með brasilíska landsliðinu á HM og sýndi hann í nótt að hann sé enn með galdra í fótunum.
Hann skoraði bæði mörk Santos og seinna með laglegri vippu er það vann fyrsta deildarleik tímabilsins.
Neymar hefur nú komið að þremur mörkum í þremur leikjum með Santos á leiktíðinni.
Ef hann heldur áfram á sömu braut er aldrei að vita nema Carlo Ancelotti taki upp símtólið enda alls ekki svo heimskuleg hugmynd að hafa x-faktor eins og Neymar í hópnum.
Líkaminn hefur brugðist honum síðustu ár. Undir lok síðasta árs spilaði hann meiddur í síðustu leikjum Santos til þess að hjálpa liðinu að forðast fall. Það tókst og spurning hvort hann muni gera slíkt hið sama til að ná síðasta dansinum með landsliðinu á HM í sumar.
Neymar Jr hits the Vinicius Jr celebration after scoring for Santos! ????????????????@TeamNey10 ???? pic.twitter.com/CK2NJiXMzO
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) February 26, 2026
Santos 2x1 Vasco
— Diário de Torcedor (@DiarioGols) February 26, 2026
?? Neymar (2) - golaço
???? Brasileirão | 4ª rodada
pic.twitter.com/daLPt4iJur
Athugasemdir





