Ísland 5 - 1 Eistland
Mörk Íslands:
Bjarki Örn Brynjarsson
Magnús Daði Ottesen
Arnar Bjarki Gunnleifsson
Emil Eldar Takao Árnason
Emil Gautason
Mörk Íslands:
Bjarki Örn Brynjarsson
Magnús Daði Ottesen
Arnar Bjarki Gunnleifsson
Emil Eldar Takao Árnason
Emil Gautason
U16 landslið Íslands spilaði við Eistland á þróunarmóti UEFA sem haldið er í Færeyjum þessa dagana.
Liðin áttust við í fyrstu umferð mótsins og gerðu strákarnir sér lítið fyrir og rúlluðu yfir Eistana með fimm mörkum gegn einu.
Bjarki Örn Brynjarsson, Magnús Daði Ottesen, Arnar Bjarki Gunnleifsson, Emil Eldar Takao Árnason og Emil Gautason skoruðu mörkin. Til gamans má geta að Magnús Daði og Arnar Bjarki eru synir Sölva Geirs Ottesen og Gunnleifs Vignis Gunnleifssonar.
Ísland spilar næst við Bosníu á sunnudaginn og verður sá leikur sýndur í beinni útsendingu á YouTube rás færeyska fótboltasambandsins.
Athugasemdir



