Dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar í dag og á sama tíma kom í ljós hvaða lið geta mæst fram að úrslitaleiknum.
Tölfræðiveitan Opta reiknaði í kjölfarið út sigurlíkurnar á hverju og einu liði í keppninni.
Arsenal, sem vann deildarkeppnina, er talið langlíklegast til þess að vinna keppnina. 27,4% likur eru samkvæmt Opta á því að Arsenal vinni keppnina, rétt tæplega tvöfalt meiri líkur en á því að þýsku meistararnir Bayern München vinni keppnina.
Arsenal hefur aldrei unnið Meistaradeildina.

Arsenal mætir Bayer Leverkusen í 16-liða úrslitunum og sigurliðið úr því einvígi mætir sigurliðinu úr viðureign Sporting og Bodö/Glimt.
Real Madrid og Manchester City mætast í 16-liða úrslitunum og Opta telur einungis 2,78% líkur á því að Real vinni keppnina en 10,79% líkur eru á því að City vinni keppnina.
Liverpool mætir Galatasaray, Liverpool er þriðja líklegasta liðið til að vinna keppnina en Galatasaray þykir ólíklegast af öllum liðunum.
Sigurlíkur allra liðanna má sjá á hér að neðan.
Opta reiknaðar líkur
Arsenal - 27.40%
Bayern Munich - 14.28%
Liverpool - 12.83%
Man City - 10.79%
Barcelona - 7.72%
Chelsea - 6.86%
Newcastle - 4.66%
Paris St-Germain - 4.64%
Real Madrid - 2.78%
Sporting - 2.73%
Atletico Madrid - 2.00%
Tottenham - 1.22%
Atalanta - 1.06%
Bayer Leverkusen - 0.47%
Bodo/Glimt - 0.39%
Galatasaray - 0.17%
Athugasemdir