Anderson, Jones, Trafford, Maguire, Griezmann, Alvarez, Alisson og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 28. febrúar 2026 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ronaldo má ekki spila fyrir liðið
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo keypti nýverið 25 prósenta hlut í spænska félaginu Almeria.
Ronaldo, sem er leikmaður Al-Nassr í Sádi-Arabíu, hefur ekki farið leynt með áætlanir sínar um að fjárfesta í fótboltafélögum og stefnir á að verða meirihlutaeigandi á félagi eftir ferilinn.

Almeria er sem stendur í þriðja sæti spænsku B-deildarinnar og í harðri baráttu um að komast upp í La Liga. Lið féll þaðan fyrir tveimur árum.

Þjálfari Almeria, Rubi, sagði eftir fréttirnar að hann myndi fagna því að fá Ronaldo í liðið sitt en það er ekki að fara að gerast.

Samkvæmt reglum spænska fótboltasambandsins má Ronaldo ekki spila á Spáni eftir að hann eignaðist hlutinn í Almeria.
Athugasemdir
banner
banner